Að hleypa heimdraganum...!
22.02.2009 20:37:13 / hugrun

Ýmislegt....

jæja, þá er enn ein helgin að verða búin og heil vika framundan!
Ingi var gífurlega myndarlegur í dag og bakaði bollur í tilefni bolludagsins á morgun. Reyndar þá borðuðum við eiginlega allar í dag, en það er allt í lagi því norski bolludagurinn er í dag! :) Við hringdum í Geir og buðum honum í bollur og hann kom næstum því hlaupandi með kaffið með sér, held að bollurnar hafi fullkomnað daginn hans hehe.
Annars þá fórum við í bíó núna um daginn og fórum að sjá Slumdog millionare! þvílík snilldar mynd!! Ég og Ingi erum bæði búin að lesa bókina, og sagan er kannski gerð aðeins kvikmyndavænni, en það skiptir engu máli, sagan er svo flott! Vonandi vinnur hún nokkra Óskara núna á eftir! :)
Ég fór í flottustu sundhöllina hérna í Oslo á föstudaginn, mega spennt að fara loksins í heita pottinn og slappa af. Sko það var verið að opna hana eftir endurbætur og kostar morðfjár að fara ofan í, en það var ENGINN heita pottur! hvurslags sundhöll hefur ekki heitapott!!! ég var mjög hneiksluð bara, svo voru sturturnar ömurlegar, kom vatn í 5 sek svo þurfti maður að ýta á takkann fyrir meira vatn, svo var það annaðhvort alveg ískalt í 2 sek, svo brennandi heitt í 2 sek, svo aftur ískalt í 2 sek, þannig að ég var alveg orðin brjáluð á sturtunni og gafst  á endanum upp við að reyna að sjampúa hárið. svo ekki nóg með þetta þá var mikill fjöldi af karlmönnunum í sundinu Í NÆRBUXUM!!!! sko gegnsæum, getur fólk ekki fjárfest í sundskýlum spyr ég nú bara! Ég vil meina að það þurfi að senda sundlaugar fólkið til íslands til að sjá hvernig alvöru sundlaugir eigi að vera!! ég held að ég  fari ekki aftur í sund fyrr en á íslandi, læt ekki bjóða mér svona heita potts lausar sundlaugar!! :)
en annars þá fór ég út að dansa í gærkvöldi, salsafestival, það var fínt nema hvað maður er orðinn svo drulluleiður á þessum snjó og að vera klæddur í 10 kíló af fötum, hundleiðinlegt!  já vonandi er snjórinn að fara að kveðja, þó ég muni líklega þurfa að skjóta fuglinn sem býr hérna fyrir utan hjá okkur og byrjar að tísta alltof snemma á morgnana um leið og byrjar að vora!
jæja, sunnudagskvöld og bíómyndin að byrja....
þangað til síðar
Hugrún Ósk

» 23 hafa sagt sína skoðun

06.02.2009 16:21:51 / hugrun

Já, við erum ennþá á lífi....

jæja hvað ætli það séu margir sem ennþá kikji inn á bloggið mitt?? hugsa að það séu fáir!  en hvað um það, bloggið má ekki deyja, maður er nú ennþá að gera ýmislegt!
já prófin gengu bara frábærlega, rústaði þessum prófum, ekkert meira um það að segja!! en annars var maður ekkert að blogga meðan maður var heima á íslandi, það er svo mikið alltaf að gerast í kringum jólin að það er eiginlega bara klikkun!
annað í fréttum er nú heldur lítið, skítakuldi í þessu landi, við fáum alltaf sjokk þegar við fáum rafmagnsreikninginn og samt getum við aldrei lært af mistökunum! það er bara kalt hérna og við botnum ofnana og þá þarf að borga fyrir það, nenni ekki að hanga með flísteppið bundið utan um mig í marga mánuði!
annars er skólinn bara byrjaður á fullu, og tíminn líður ótrulega fljótt! ég er líklega komin með vinnu á kaffihúsi úti í sumar, þannig að maður ætti aðeins að geta borgað niður skuldir þessa árs! og þetta er ekki eins og kaffihúsvinnan hérna um árið, það var nú meira bullið, þetta er kaffihús sem er bæði utandyra OG innandyra, þannig að það er alltaf unnið, ALLTAF, þannig að ég verð ekki í sama ruglinu og þá!
ég er búin að lofa sjálfri mér að nú ætli ég að hætta að vinna í fiskinum, ég verð að fara að gera eitthvað annað en það, þannig að þetta er fyrstaskrefið, kaffihúsavinna!
hvað ingi gerir eftir útskrift er ennþá óráðið og verður það líklega eitthvað áfram, en það skemmtilega við fjarnámið mitt er að sjálfsögðu að ég get verið hvar sem er og því erum við mjög opin fyrir hverju sem er, hann mætti fara til kína mín vegna! :)
annars er ekkert meira í fréttum nema við ætlum að baka pizzu í kvöld og ég hef heitið því að meðan þessi hálka er úti mun ég ekki taka strætó nema í neyð, því þessir kallar kunna ekki að í hálku, ég hélt ég þyrfti á áfallahjálp eftir síðustuferð! spurning hvort sá hafi verið með ökuskírteini yfirhöfuð!!!
allavega hilsen í bili
Hugrún Ósk

» 30 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 22:13:02 / hugrun

Prófin búin og komin í jólafrí!

jæja þá er bara kominn föstudagur, langþráður! Ingi kláraði prófin sín í morgun og þá vorum við loksins bæði komin í jólafrí og getum slappað af! prófin gengu bara ágætlega held ég, en það kemur betur í ljós síðar! rosalega þægilegt að taka prófin bara í sendiráðinu, maður lokaður inn í herbergi og bara einn að taka próf! Geðveikt, ég þuldi allt upp sem ég skrifaði í prófinu, geðveikt þægilegt ekki að þurfa að hugsa út í hvort manneskjan fyrir aftan þig sé að horfa beint á píparann eða manneskjan við hliðina á þér sé að verða brjálaður á hávaðanum í þér! :)
Annars er kvöldið að fara í það að pakka niður enda verður haldið til íslands á sunnudaginn, líka langþráð! ingi kláraði að pakka niður á 10 mínútum, held að ég sé að nálgast 2 tímana. Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það að pakka niður, ég er vog því miður, og það að taka ákvörðun um hvað ég á að taka með mér og hvað ég á að skilja eftir er geðveikt erfitt! ég vil taka allt með mér, hvernig á ég að vita hvað ég vil nota eftir viku, það fer bara eftir skapi!!
En annars þá erum við langt komin með jólagjafirnar, maxað á vísa að sjálfsögðu! hvað gerðu fátækir námsmenn fyrir tíma vísakortsins og yfirdrátts? kannski hefur verið meira
ofbeldi á skrifstofum lín heldur en er í dag...
en já íslandsför á sunnudag og þar munum við halda til í hlíðunum í mánuð áður en við snúum aftur til dýrasta lands í heimi!

Hilsen fra Norge
Hugrún Ósk

» 23 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 11:35:01 / hugrun

Allt að verða vitlaust!

jæja, það er allt að verða vitlaust heima!! ég vona að það muni ekki sjóða svona upp úr á næstunni! það er margt áhugavert að gerast samt. G.Pétur búinn að setja á Youtube viðtalið hans við Geir, sem hann ákvað ekki að birta fyrr en núna, sem eru náttúrulega mikilmistök að hafa ekki sýnt það þegar þetta gerðist. En mér finnst frábært að hann hafi ákveðið að birta það núna, fjölmiðlar eiga ekki að vera ritskoðaðir. hvað varð eiginlega um frjálsa óháða fjölmiðla??
Svo erum við að tala um frelsum Hauk mótmælinn, hvað sem manni finnst um það, þá er það versta sem ég hef heyrt er að neyðarlínan kom ekki þegar hringt var á hana. þetta kom fram í kastljósinu á mánudaginn og Eva mamma hans Hauks sagði að sjúkrabílar hefðu ekki komið fyrrum en 24 mínútum seinna! Hvað er að gerast, ber fólkinu ekki skylda til að hjúkra öllum hver sem þau eru. Skrítið að Neyðarlínan neiti að tjá sig um þetta mál og neiti að gefa kastljósinu afrit af símtölum þeirra sem komu fram í kastljósinu. Undarlegt mál, vona að svona gerst aldrei aftur!
Annað var að horfa á norska sjónvarpið í gær og sá ansi áhugaverðan þátt, Brennpunkt heitir hann og er fjallað sérstaklega um Jón Ásgeir í bónus og aðra útrásavíkinga og ástæðu þess að bankarnir féllu. hér er linkur á hann: 
http://www1.nrk.no/nett-tv/klipp/437233
Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þennan þátt, ég tek þessu mæð fyrirvara, og vona innilega að það sem var sagt í þættinum sé ekki satt, OKKAR VEGNA! verð að viðurkenna að það sem þeir segja hljómar mjög trúlegt þegar hlutirnir eru settir í svona perspektiv eins og norsarinn myndi segja. Þetta er mjög létt norska og enska inn á milli og ekkert roslaega langt. væri gaman ef einhver myndi horfa á þetta og kommenta á það.
Annars er bara skólinn á milljón og fréttavefirnir þess á milli!
Hilsen í bili....
Hugrún Ósk

» 24 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 11:36:19 / hugrun

úffamæ

Ég ætla að taka mér fréttapásu, allt í einu held ég að ég sé bara búin að fá nóg! það eru allir svo reiðir og ég er búin að vera brjáluð ógeðslega lengi, ég er bara orðin ógeðslega þreytt á að vera reið. held að manni sé farið að vanta svona hamingju fréttir, held að það sé málið! annars voðalega lítið að frétta af okkur Inga, við erum bara í skólanum og eigum afskaplega viðburðalítið líf hérna! reyndar fórum við á alíslenskt sveitaball síðasta laugardag, það var stór skemmtilegt með Val úr Buttercup í fararbroddi. fengum allan sveitaballa skalann, allt frá bubba til bon jovi! bara stuð sko! en ég ætla að halda áfram að lesa, er búin að vera voðalega löt eitthvað núna í 2 daga, þarf að rífa mig upp úr letinni. það sem heldur mér gangadi hérna er að ég á rúmlega hálft kíló af sunset tei, svaðalega gott! :)

jæja vonandi förum við að fá einhverjar happy fréttir og hættum að heyra að allir hata okkur og geri grín að okkur, það er of vandræðalegt!

Hugrún Ósk


» 28 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 12:32:53 / hugrun

tjékk itt át!

kíkjið á þessa síðu....

http://don.blog.is/blog/don/#entry-701194


Hugrún Ósk

» 21 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 11:48:47 / hugrun

Samviskulausir forustu úlfar!

sko, þegar ég heyrði það að menn hafi þurkað út einhverja 50 milljarða skuldir, bara si svona, ég hélt það væri bara djók! en neeeeiii, svo virðist ekki vera, kvissbammbúmm þurkað út!!! ég er svo reið að hálfa væri nóg!! það er spilling í öllum löndum, en ég hélt að við værum nú svona mátulega saklaus, fyrir utan allar frænda og frænku atvinnuna sem fæst með réttu eftirnafni, það er bara einn stór miskilningur! Ég er ennþá svo reið að ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ekki fyrr en ég veit meira um þetta skítapakk á sérkjörum og spyr hvað í andskotanum er að þessu fokking liði?? hefur fólk enga samvisku?? er enginn sem kemst til topps í þessum fyrirtækjum nema að traðka á hinum, OKKUR sem sagt! helvítis fávitar!!

Ég er brjáluð!
Hugrún Ósk

» 25 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 12:01:12 / hugrun

KOSNINGAR STRAX

í gegnum tíðina á íslandi hefur nánast enginn í íslenskum stjórnmálum heyrt setninguna "segja af sér". einhverja hluta vegna vita þeir ekki hvað það er. Davíð Oddsson sagði í fréttum í DV í gær þegar spurt var hvað honum fyndist um þessi mótmæli, hann svaraði með því að gera lítið úr mótmælendum og segja að honum kæmi það í rauninni ekkert við því ef þeir gætu ekki fundið fleiri en þetta til að mótmæla væri það nú hálf lélegt og svaraði þar með spurningunni að hann ætlar ekki að segja af sér. þetta gerir mig öskuvonda, hvað er að þessum manni?

Við Telma vorum á tímabili einstaklega duglegar í að mæta og mótmæla, við mótmæltum öllu því sem við kom sjálfstæðisflokknum. Á meðan á því stóð stóðu ríkisplebbarnir inn í alþingihúsi og horfðu út um gluggan og hlógu eins og þeim kæmi þetta ekkert við! þeir horfðu út og sögðu þetta er bara ómenntað lið og unglingar. En á rödd almennings ekki að heyrast, er það bara skoðun ákveðna útvalda sem fara með völd í viðskiptaheiminum sem má heyrast? "heyrðu mig vantar skattalækkun á fyrirtæki svo ég geti keyft eina einkaþotu. já  ekki málið við reddum því". Erum við ekki komin með nóg að þessu? Við Telma gáfumst upp á endanum að mótmæla, það var enginn sem hlustaði!

Stundum finnst mér eins og litla ísland sé spilltasta land í heimi, það er alveg sama hvað þú kýst, hvað þú mótmælir og hvað þú gerir, þú færð ekki það sem þú villt, nema þú sért ríkur og eigir pening þá græðir þú á því! Ég persónulega er gjörsamlega komin með nóg af þessari stétta skiptinu í landinu sem sjálfstæðislfokkurinn er búinn að búa til og vil fá kosningar núna. En hvernig fáum við þessar kosningar?? Það er ekki nóg að segja við hvort annað heima, já ríkistjórnin er ömurleg, búin að missa allt traust, þeir vita það sjálfir, þeir hljóta að boða til kosnina í vor! held ekki!! hver vill missa vinnuna sína sem þeir töldu örugga næstu 4 árin, enginn!! þess vegna verðum við að skilja það að hlutirnir reddast bara ekki einhvernveginn, núna verður að mótmæla af eins mikilli hörku og hægt er og ekki láta þessa pappakassa komast upp með það að sitja og horfa út um gluggan og hlægja af fólkinu fyrir utan, það er komin tími til að fólkið í landinu sýni stjórninni ekki svona mikla virðingu. Það er ekki alltaf hægt að fyrirgefa allt, og þessir stjórnmála menn eru ekki yfir okkur hafin, stundum held ég að þeir gleymi því og við líka. þeir eru ekkert merkilegri en við og þess vegna ættum við að geta rekið þá ef okkur finnst þeir vera að standa sig ömurlega! Hvernig væri að vera með jafn brjáluð mótmæli og grunnskólakrakkarnir í Kristjansand þegar þau mótmæltu því að geta ekki sótt um í hvaða menntaskóla sem er og þau öskruðu fritt skolevalg eins og þau áttu lífið að leysa. þurfum við að flytja inn grunnskólakrakka frá Noregi til að geta öskrað af almennilegum krafti á alþingishúsið?? ég heimta KOSNINGAR STRAX!!!!!

Baráttukveðjur frá Noregi
Hugrún

» 31 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 15:29:16 / hugrun

Kreppuáfangi, Sparnaður 101!

jájá, ekki mikið blogg þessa dagana, en ástæðan er nú bara sú að fjarnámsnemi eins og ég á mér ekkert neitt svakalegt líf hérna úti. Maður er bara heima í tjillinu að læra og horfa á fyrirlestra og svona. Salsað byrjar ekki fyrr en þriðjudaginn, þannig að ég er ekki heldur búin að hreyfa á mér rassinn, umfram það sem er nauðsynlegt! Við erum nú samt búin að hitta hina íslensku krakkana og ræða um  ástandið og ekki ræða um það, hafa partý og borða kökur.

Mikill metnaður í fólki að baka brauð og kökur þessa dagana og reyna að vera bestur í því að spara, ég og ingi erum nú ekki best í því, en við erum nú samt orðin ansi góð í því að spara. Ingi var um daginn í trikkinu og þar hafði einhver verið að versla og hakk pakkinn hans dottið upp úr pokanum, ingi hirti hann að sjálfsögðu, græddum sirka 600 kall íslenskar! snilld!! við erum líka búin að baka nokkrum sinnum bananabrauð og kryddbrauð og núna það nýjasta döðlubrauð! það sparar manni alveg helling í brauð kaupum, því hvert brauð kostar sirka 500 kall ísl. Svo er það að leita uppi öll tveir fyrir einn tilboð í búðum sem við finnum, kaupa bara júrósjopper og first price vörur, og first price kókið kostar bara 6 krónur norskar, þannig  að ekki er lengur leyfilegt að kaupa alvöru kók (kókakóla sko, ekki hinnsegin kók). já og svo er ekki lengur leyfilegt að kaupa nýjar bækur ef maður þarfnast lesefnis, þá er einungis leyfilegt að kaupa notaðar bækur á amazon.uk. ekki er leyfilegt að fara í klippingu á tískuhárgreiðslustofum, ingi fer til gæja frá írak í klippingu og fær klippingu á 100 kall sem er einn þriðji af venjulegu verði. ég fer einungis í klippingu til Randi, mæti með pakka af lit og hún klippir og við gerum út um það með ódýrust vínflöskunni í ríkinu. þar að auki er ekki leyfilegt að setja í þvott og hafa langan þvott, einungis er notast við super fast programm sem tekur korter, því 90 mín í þvottavél kosta 20 kall, sinnum 17, þannig að ef manni dettur í hug að renna sér á rassinum niður brekku, þá er það ekki í boði því við höfum ekki efni á löngum þvotti. þetta eru svona beisikk sparnaðar reglurnar okkar hérna í Dýralandi og frá þeim er ekki vikið!

Annars er það að frétta að við fórum á fund með sendiherranum og svo í gær á fund með Steingrími j. Maður er orðinn svona nett æstur að ræða alla þessa pólitík, daginn út og inn. segi ekki meir um kreppuna, hún er hvort eð er í öllum blöðum og bloggum, en ég segi, kostningar í vor, ekki spurning, kemur ekki til greina að þessir pappakassar fái  áfram að stjórna og halda að við gleymum öllu bara si svona. kosningar í vor!!!!

Hilsen frá dýra Norge
Hugrún Ósk

» 29 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 12:06:41 / hugrun

Er það nú ástand!!!

Já ætli það sé ekki  kominn tími til að blogga aðeins um ástandið heima. verð að viðurkenna að ég hef ekki haft mikla löngun til þess að skrifa hvað maður er að gera þessa dagana þegar allt er að fara til fjandans heima. Á stundum eins og þessum þá er maður bara ánægður með að eiga ekki neitt, þá missir maður EKki neitt. Ég á ekkert nema skuldir, og því miður tapast þær ekki. Það er þó allavega ágætt að þær eru þó ekki 100% íbúðarlán í evrum eða eitthvað álíka, guð hjálpi þeim sem eru í þeirri stöðu í dag!

En já dagar mínir undan farið hafa farið í það að vinna upp námsefnið sem ég átti eftir að lesa vegna flensu sem ég lagðist í um daginn. Búin með 2 af 3 verkefnum sem skila arf helst núna og ég er búin að sitja í 3 daga streit fyrir framan tölvuna og á daginn í dag og morgun daginn eftir. er komin með nett ógeð á þessum verkefnum en ég ætla að vera búin með þetta drasl á miðvikudaginn þegar ég á afmæli, og ég ætla að taka mér frídag og ekki opna bók, né tölvu!!!!! gleder meg sinsykt mye!!!

en já svo er ég búin að vera þýðandi í fullu starfi, chilenska fjölskyldan er búin að vera að leyta sér að íbúð og ég er búin að fara í fullt af skoðunum með þeim, því ivan og maría eru alveg mállaus, og það var alltaf á þeim tíma  sem synir þeirra voru að vinna. þannig að þarna var ég að þýða á millli frá norsku yfir á spænsku og á spænsku yfir á norsku. svo loksins fengu þau íbúð  og þá þurfti ég að þýða allan samningin og svo hringja þau í mig til að hringja í leigusalan og leigusalinn hringir í mig til að hringja í þau! þannnig að ég er búinn að vera í fullri vinnu í þýðingum meðfram námi!

en já annars er ekkert mikið að frétta nema að ég er búin að liggja yfir fréttavefunum, íslensku, norskum, dönsku og breskum til að sjá öll sjónarhorn þessarar milliríkjadeilu og bulls sem er í gangi og mín niður staða  er sú að Gordon Brown er eitt  af mestu fífl sögunnar, og ákveðinn seðlabanka stjóri íslands er ekki fjarri því að vera á sama stalli og Gordí Brúni! Það er búið að vera lokað fyrir millifærslur hérna í Noregi líka og fólk misjafnlega heppið með hvað það átti á reikningunum sínum áður en þetta gerðist allt. við Ingi eigum alveg nóg til að lifa á í bili, þó að námslánin mín séu bara að gufa upp. Námslánin mín á genginu í dag eru 50 þús norskar en ingi fær allt í norskum þannig að líklega reddast þetta allt saman, en ef ég væri hérna ein og ætlaði að lifa á 50 þúsund norskum þá væri ég úti allar nætur að týna flöskur! Við erum ekki dottin í þann pakka ennþá, en kæra LÍN þessi hálfvita skapur að tengja ekki námslánin eftir lögheimili, eða fyrir skiptinema, skóla sem það stundar nám við þá og þegar, er að gera okkur gjaldþrota! Í Noregi fá nemar miklu meiri pening lánaðan og 40% af því er styrkur og kostnaður í skólunum er 1000 kall norskar!!! talandi um að háskóla nám á íslandi gefi öllum á landinu jafnan kost á að stunda nám, það er bara bull og helvítis vitleysa, yfirdrátta heimildin mín fór í að borga þetta "innritinurgjald"! En já það er eins gott að þessir ofurríku íslendingar séu ekki með leynda reikninga  í Lúxemborg og lifi í snekkjum í karabíska hafinu, þá á ég eftir að verða svo mega pist að ég veit ekki hvað ég geri! Vonum að tilþess komi ekki!!!!!!!!

Ekki meira í bili
Hugrún Ósk

» 25 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 17:37:32 / hugrun

Til bake til Norge

Já þá er ég komin heim til noregs. það er svo skrítið, ég fer alltaf að heiman og heim! það var ágætt að lenda í Osló og koma út í 15 stiga hita og logni úr skítaveðrinu sem er búið að vera heima! ég var að sjálfsögðu algjörlega svefnlaus, þannig að það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim var að henda mér upp í rúm og sofa í marga klukkutíma! :)

En svo var Ingi alveg brjálæðislega sniðugur! Hann var búinn að segja mér að ég mætti ekki gera nein plön fyrir laugardaginn, hann væri búinn að plana svolítið. Svo þegar ég kom á föstudaginn, haldiði að hann hafi ekki dregið upp miða í leikhús, nánar tiltekið Sound of music! Og við fórum að sjá það í gær!! vá það var algjör snilld, geðveikt flott, og þvílíkir söngvarar, það var ekkerty smá!!! ég hafði smá áhyggjur af því að það væri erfitt að skilja það, þar sem allt var á norsku en það gekk bara vel. meira segja þó aðalleikkonan hefur líklega verið frá Bergen eða þar í kring og skrollaði rrrrinu ekkert smá!!!

en annars hef ég bara sofið mjög mikið,slakað á með Inga og horft alveg gígantískt mikið á sjónvarp! en á morgun byrjar alvaran, þá verð ég formlega alvöru fjarnemi og sitt fyrir framan tölvuna og hlusta á allt í gegnum hana! en núna verð ég að fara að hjálpa inga að elda, þannig að bara þangað til síðar....

Hugrún Ósk

» 22 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 17:22:59 / hugrun

summer is gone.... (JBJ)

jæja endurvakning bloggsins eftir sumarið!

já þetta hefur verið frábært sumar, og núna er maður bara kominn í háskóla Íslands í mannfræði! já ég tók smá ubeygju í sumar og bara breytti öllum plönunum mínum! en það er líka fínt. Ég verð úti með Inga í Noregi í vetur því Ingi á nú alveg heilt ár eftir og því verð ég bara í fjarnámi að elta Inga út um allt! en ég er ennþá á Íslandi og verð á Íslandi í nokkra daga í viðbót. Fer út föstudaginn 26 sept eldsnemma. þar af leiðandi verður mitt síðasta salsakvöld núna á mánudaginn, og ég get ekki beðið!!!

en allavega ég er að reyna að lesa einhverja killer bók í þessum blessuðu fræðum sem ég er ekki alveg að meika, þannig að það er víst best að reyna að halda áfram með þetta.... já bloggið is back, en hefst með látum síðar! ég er ennþá á lífi og mun koma með einhverjar fréttir síðar! :)

Hugrún Ósk

» 24 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 17:35:01 / hugrun

Fljótt skipast veður í lofti!!!

Sólin (Hugrún) farin, og þá varð allt bara skýjað og rokrassgat í Osló.
Já þá er Hugrún bara farin "heim" og ég skilinn einn eftir hérna að læra, oj bara en fæ mömmu, pabba og Teklu litlu systur i heimsókn á föstudaginn þannig að það er alltaf eitthvað að hlakka til. Einnig EM í fótbolta í gangi þannig að maður ætti nú að finna sér nóg að gera fyrir utan að læra fyrir próf svo að maður verði ekki einmanna.... 

Kv. Samt ögn einmanna Ingi

» 30 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 17:20:24 / hugrun

Meika ekki meir!!!!!!!

ég er búin með alla þá auka dropa af einbeitingu sem ég hafði í kroppnum! ég er búin að sitja síðan klukkan 9 í morgun og stara á bækurnar og lesa og gleyma því sem ég var að lesa eftir 2 sekundúr! vil bara ljúka þessu bévítans prófi af! komin með ógeð af forebyggende arbeid i barnevern! vil ekki heyra orðið forebygging í marga mánuði!!!!
Hugrún

» 27 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 16:46:26 / hugrun

Próf og aftur próf!

Það er tæplega 30 stiga hiti úti og sól algjört sólarlanda veður! fáránlegt að svona veður sé í maí!!! og það versta við þetta er að við Ingi sitjum bara inni og lesum fyrir próf! reyndar kíkjum við nú út sirka klukkutíma á dag bara til að halda geðheilsunni og drögum svo niður gluggatjöldin það sem eftir lifir dags til að verða aðeins minna bitur!
Annars verður þetta ekkert lengra í bili, það er bara læra læra læra læra og drekka marga lítra af te til að lifa af daginn! get ekki beðið eftir miðvikuldeginum, það er einsgott að það verði líka sól á miðvikudaginn! Annars kem ég heim næsta sunnudag,  lendi um hádegi, voða næs bara sko! 

þangað til síðar...
Hugrún Ósk

» 26 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  29  Alls: 88603